Aðalverktaki húsfélaga

Viðhald húsfélagsins
á einum stað.

Frá fyrstu skoðun til fullkláraðs verks. Húsfélagið þarf ekki að ráða ráðgjafa, útbúa útboð, leita að verktökum og finna svo einhvern til að halda utan um framkvæmdina.

Ferlið

Fjögur skref, einn ábyrgðaraðili

Nánar fyrir húsfélög →
  1. 1

    Fyrsta samtal

    Þið segið okkur hvað þið vitið — eða vitið ekki. Reiknivélin gefur fyrstu hugmynd um umfang.

  2. 2

    Skoðun og magntaka

    Við skoðum húsið, mælum og skráum. Ekkert verð byggir á ágiskun.

  3. 3

    Tilboð og húsfundur

    Þið fáið sundurliðað tilboð og kostnað á íbúð — tilbúið til að leggja fyrir húsfund.

  4. 4

    Framkvæmd og skil

    Við framkvæmum, stjórnum verkinu og skilum með skilamöppu og ábyrgð.

Þök og hús í Reykjavík séð úr lofti

Hvert hús á sér sögu.
Við höldum utan um hana.

Skoðanir, teikningar, magntölur og áætlanir safnast á eignina — og fylgja húsfélaginu milli verkefna og stjórna.

Þjónusta

Hvar sem þið eruð í ferlinu

Hvernig við vinnum

Einn aðili ber ábyrgð á öllu verkinu

Verksamningur beint

Við erum ekki milliliður. Við gerum tilboð og verksamning við húsfélagið og berum ábyrgð á verkinu, göllum og tímafrestum.

Verð byggt á magntölum

Tilboð byggja á mældum og staðfestum magntölum. Kerfið leyfir ekki tilboð út frá ágiskun.

Aukaverk aðeins með samþykki

Ekkert aukaverk fer í uppgjör án þess að húsfélagið hafi samþykkt það skriflega.

Vitið þið ekki hvar á að byrja?

Þá er ástandsskoðun rétta fyrsta skrefið.