Persónuvernd
Hvað við gerum við upplýsingarnar þínar
Við söfnum því sem þarf til að gera tilboð og vinna verkið — ekki meiru. Hér að neðan stendur nákvæmlega hvaða reitir það eru, hvert þeir fara og hvernig þú færð þeim eytt.
Síðast uppfært 20. september 2026.
Ábyrgðaraðili
Hús og Viðhald ehf., kt. 541113-0100, Skeiðarási 10, 210 Garðabær.
Fyrirspurnir um persónuvernd: husogvidhald@gmail.com eða 777 4234.
Við berum ábyrgðina. Þjónustuaðilarnir sem taldir eru upp hér að neðan vinna gögnin fyrir okkar hönd — þú hefur samband við okkur, ekki við þá.
Hverju við söfnum
Fer eftir því hvað þú gerir á síðunni.
Reiknivélin, án þess að senda fyrirspurn
Ef þú slærð aðeins inn magntölur söfnum við engum upplýsingum um þig. Vistuð áætlun geymir verkliði og verð, ekkert um þann sem reiknaði.
Hjálp við útfyllingu (myndir og lýsing)
Lýsingin og skrárnar sem þú setur inn eru sendar til greiningar og ekki vistaðar hjá okkur — þær fara beint í greininguna og hverfa.
Til að hindra misnotkun skráum við dulkóðað auðkenni fyrir nettengingu þína (saltað hakk, ekki IP-talan sjálf) ásamt tímasetningu. Þeirri færslu er sjálfkrafa eytt eftir 48 klukkustundir.
Fyrirspurn um verk
Þá biðjum við um það sem þarf til að hafa samband og staðsetja verkið:
- Nafn húsfélags og heimilisfang eignarinnar
- Nafn, netfang og símanúmer tengiliðar
- Athugasemd frá þér, ef þú skrifar hana
- Skrár sem þú hleður upp — teikningar, myndir, eldri skýrslur
Meðan á verki stendur
Við tökum ljósmyndir af húsinu við skoðun og úttektir, og skráum ástand, magntölur og framvindu. Myndirnar eiga að sýna byggingarhluta, ekki fólk.
Aðgangur að „Mitt húsfélag“
Netfang og nafn. Aðgangur er stofnaður af okkur; það er engin sjálfsskráning.
Til hvers
Til að svara fyrirspurninni þinni, gera tilboð, framkvæma verkið og standa skil á því. Bókhaldsgögn — reikningar, samningar, uppgjör — geymum við eins lengi og lög um bókhald krefjast.
Við seljum ekki upplýsingar, notum þær ekki í markaðssetningu og sendum þér ekki fjöldapóst.
Hverjir koma að gögnunum
Við notum þjónustuaðila til að reka kerfið. Þeir mega aðeins vinna gögnin fyrir okkar hönd.
| Þjónustuaðili | Hvað | Staðsetning |
|---|---|---|
| Supabase | Gagnagrunnur, skjalageymsla og innskráning | Evrópa |
| Vercel | Hýsing vefsins | Evrópa / Bandaríkin |
| Anthropic | Greinir lýsinguna og myndirnar úr hjálp við útfyllingu | Bandaríkin |
| Resend | Sendir tilboð og tilkynningar í tölvupósti | Evrópa / Bandaríkin |
| HMS | Uppfletting heimilisfanga í Staðfangaskrá | Ísland |
Þegar gögn fara til Bandaríkjanna byggist flutningurinn á stöðluðum samningsákvæðum Evrópusambandsins.
Hversu lengi
Færslur um notkun á sjálfvirkri útfyllingu: 48 klukkustundir.
Upplýsingar um verk og fyrirspurnir geymum við á meðan viðskiptasambandið varir og eftir það eins lengi og þörf er vegna ábyrgðar á verkinu og bókhaldsskyldu. Biðjir þú um eyðingu eyðum við því sem okkur er ekki skylt að geyma.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig og fá afrit af þeim
- fá rangar upplýsingar leiðréttar
- fá upplýsingum eytt þegar okkur er ekki skylt að geyma þær
- andmæla vinnslunni eða fara fram á að hún verði takmörkuð
Sendu beiðni á husogvidhald@gmail.com og við svörum innan mánaðar.
Sértu ósátt/ur við hvernig við förum með upplýsingarnar geturðu kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is.
Vafrakökur
Við notum engar rakningarkökur, enga vefmælingu og enga auglýsingakóða.
Eina kakan sem við setjum heldur þér innskráðri/innskráðum þegar þú notar „Mitt húsfélag“ eða stjórnborðið. Hún er nauðsynleg til að innskráningin virki og hverfur þegar þú skráir þig út.
Öryggi
Skjöl liggja í lokaðri geymslu sem ekki er hægt að fletta upp í; aðgangur fæst aðeins um tímabundnar slóðir sem renna út eftir eina mínútu. Húsfélag sér aðeins sín eigin gögn.
Spurningar? husogvidhald@gmail.com · Hvernig ferlið gengur fyrir sig