← Þjónusta

Ástandsskoðun

Húsfélög sitja oft uppi með grun um að eitthvað þurfi að laga en enga yfirsýn. Ástandsskoðun gefur ykkur skýra mynd af ástandi hússins og hvað er brýnt.

Fyrir hverja

Húsfélög sem vita að viðhald er framundan en vita ekki hvað þarf, hvað það kostar eða hvað má bíða.

Niðurstaðan

Ástandsskýrsla með forgangsröðun og kostnaðarmati sem hægt er að leggja fyrir húsfund.

Hvað felst í þessu

  • Skoðun á staðnum, byggingarhluta fyrir byggingarhluta
  • Ljósmyndir og skráning á göllum og skemmdum
  • Mat á ástandi og forgangi hvers verkþáttar
  • Tillögur að úrbótum
  • Magntölur og kostnaðarmat út frá því sem sést

Viljið þið vita hvað verkið gæti kostað?

Opna reiknivél

Önnur þjónusta